Bloggsíða Ballerínunnar
04.05.2007 12:14:34 / ballett

Hæhæ:Dmargt búið að gerast hjá mér,ballettsýningin var í fyrradag og það alveg rosalega vel, reyndar er alltaf eitthvað sem maður vill gera betur en ég er bara mjög sátt við frammistöðu mína:DVar í hlutverki marðar í fyrrihlutanum sem var Þumalína:DÞurfti að komast í snertingu við minn innri leikara...og flippa:lol:

Svo kom aðeins fágaðri ballett, Giselle og loksins nútímaverkin. Held að ég verði alveg gjörsamlega búin eftir þessa viku, samræmda prófið í ensku  í gær og stærðfræðipróf í dag. Gekk alveg vel í enskunni, reyndi svona að monta mig aðeins í rituninni ef ég klúðraði einhverju í hlustun eða eitthvað:$

Planið fyrir helgina er síðan glænýji sumóinn ég hef ennþá bara verið þar í eina nótt og ætla núna að vera tvær:DÞetta verður bara slökun og svona...reyndar er potturinn ekki kominn, pöntunin okkar fór í eitthvað allsherjar klúður....svo að maður verður bara að notast við sturtuna og ylja sér þar:D8)Þetta er sko flottasta sumarhús sem ég hef séð og við erum búin að skreyta það geegt flott, með hlutum hvaðanæva að úr heiminum, Chile, Afríka, Hólmavík og fleira:D

Ég er farin að hlakka til sumarsins, búin að fá vinnu sem matvinnungur í Ölveri(Kristilegar sumarbúðir) og svo fer ég aftur þangað í ágúst sem barn:DFrétti að flestir gömlu foringjarnir mínir yrðu og er alsæl með það;)Ennn...Ég ætla að kveðja:D

 

Bæjó- Prómadonnan OUT -


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 17:07:51 / ballett

Ég hef ekkert að segja.....

Hæ...Var að pæla....Hvað á ég eiginlega að segja ég meina "The story of my life":

Vakna

Skóli

Læra og borða

Taka strætó í ballett

Koma heim og borða kvöldmat oftast um svona níu til tíu

Ná pínulitlum Despo, Prison Break eða einhverju

Fara að sofa

Eitthvað sem þið viljið spurja um, fræðast um???

Reyndar finnst mér soldið skemmtilegt að ballettskólinn sem ég er búin að sækja um fyrir sumarið( www.royal-ballet-school.co.uk/outreach/internationalsummerschool.htm) var að senda mér bréf í gær þar sem stóð að þeir væru að fara yfir umsóknina mína:D

 Oooooggg....Fólkið sem færði mig inn í þennan heim er nýbúið að eiga afmæli og veislan var í gær:P Ég bakaði víst geeegt góða köku...Þurfti að gera kremið sjálf og allt8)

Þeim var gefið svona skilti á sumarbústaðinn okkar sem er BTW alveg að koma:!:Það er verið að fara að leggja parketið og allt!Ég hlakka svo geeeggggttt til að geta bara verið í rólegheitunum með bók og fuuuullllt fullllttt af DVD:D(Enginn til þess að trufla mig).
Ég ætla að nefna Herbergið mitt Kötukot...Er það ekki meira grípandi heldur en Prímadonnukot?P.K?Ég er opin fyrir uppástungum:$

Samfés vaar í gær...komst ekki, var í ballett í dag svo kostar þetta líka frekar mikið....2300!Ég held ég myndi frekar kaupa mér einhver flott föt eða eitthvað...ennn...Bless!

Prímadonnan-out 


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 17:23:32 / ballett

Hellúú....!

Jæjjja....Nú var ég í fæðingablettatöku í dag...Reyndar var það það eins sem ekki var gott í dag, skólinn byrjaði ekki fyrr en kl. 11:20 og ég bara chillandi hér heima;)Jenni tók blettina og gerði með sóma...allavegana held ég það, ég fann ekkert fyrir þessu. Reyndar var mjög óþægilegt að á stofunni hans var svona plast beint fyrir augunum á mér sem speglaði allt sem hann var að gera:$Eeeekkki mjög gott, ég gat ekki hætt að líta á hann þar:SÞetta kennir mér samt að vera bein í baki því ég er svo hrædd um að saumarnir gliðni svo ég þori eiginlega ekkert að hreyfa mig og sit bara teinrétt. Það eina sem ég get gert er að skrifa á tölvuna. Annars tekur í þá:S
En það sem er ógeðslegast er að ég má ekki fara í sturtu fyrr en á laugardaginn:S:S

HJÁLP!!!8|

Prímadonnan....8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 15:09:55 / ballett

Hæhæ:D;)

Hallúú.....Langt síðan ég hef skrifað.....Í Afríku var rosalega gaman, Það var rosalega langt ferðalag þangað og auðvitað var maður nattlega sauðþreyttur þegar maður kom til Cape town. Þaar vorum við í sjö daga á....ja við skulum segja ekkert svo sérstöku hóteli og við gerðum margt skemmtilegt, fórum uppá borðfjall í svona kláf, fórum á sjávarsafn og svo fórum við í tvo túra með gædi:DÞað var ógó gaman nema einhvernveginn tókst mér að týna gallajakkanum mínum....:SÞað féll nú samt eiginlega í skuggann þegar ég fékk að fara inní búrið hjá blettatígri og klappa honum. Hann var voða þægur og lét eiginlega ekkert í sér heyra.:PEftir sjö daga fórum við með flugi til Jóhannesarborgar og þaðan út í sveit á Sun City, flottasta hótel EVER!!!Það var sérstök verslanamiðstöð með bíói og allt;):DÉg náði góðum lit þar, var í sundlauginni og svona og líka í Valley of Waves sem var svona manngerð strönd og öldulaug og 100 m.langri rennibraut sem ég fór í og maður var eiginlega í frjálsu falli:DHún var bara svona baint niður og svo voru líka tvær aðrar rennibrautir:DSíðan fór ég heim og nú hefur hversdagsleikinn rænt frá mér brúnkunni og ég er að verða búin í prófum, á bara tvö eftir:D....L8er Dudes

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 16:57:12 / ballett

Hellúúú:D

Hæ!Hér er Afríkufarinn;)Ég trúi eiginlega ekki alveg að ég sé að fara til Afríku!!Nú eru 11 tímar þangað til ég á vakna en tæknilega eru bara eitthvað 7 tímar þangað til ég á að vakna því ég fer náttúrulega að sofa kl. 11 oog maður veit ekkert af sér á meðan maður er sofandi:)Ég þarf víst að ferðast með fjórum flugvélum og ferðin er svona:

Ísland-London
London-Madrid
Madrid-Jóhannesarborg
Jóhannesarborg-Cape Town!!

Ég verð 39 tíma á ferðalagi og kem ekki til Cape Town fyrr en kl. 4 á þriðjudaginn:haha:Ég er geegt hrædd um að ég verði bara að leka niður af þreytu, (sem ég verð örugglega)Og geti ekki haldið mér vakandi eða eitthvað þegar ég er komin. Auðvitað sef ég eitthvað!Ég hlakka svo til!!!

P.S segðu Andra að ég sjái kannski ljón, allavegana eðlur!!!(Er ekki svolítið mikill munur þar á .....???):haha:

Prímadonnan

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 14:25:05 / ballett

Hallóóó...

Hæhæ:D

Ég segi allt gott,bara byrjuð í skólanum og svona, gengur baara vel, reyndar alveg rosalega mikið að gera með ballettinn og þannig, pabbi lagði tímana mína saman í ballett og ég er víst alveg fimmtán og hálfan tíma!!!Svo að þið getið ekki búist við því að ná tali af mér einhvern tíman bráðlega....Nema auðvitað ef þið búið í Danmörku, þá megið þið hringja!:)Ég er víst að fara í Þórsmörk á miðvikudaginn og ég hlakka alveg rosalega til, allur níundi bekkur er að fara og það verður svaka stuð:D:D
Ég var reyndar að pæla í því að fara ekki, útaf ballettnum en svo bara ákvað ég að fara:D:DÉg er líka byrjuð að telja niður dagana að Afríku ferðinni!!!JEIJJJJJ!!!Ég trúi ekki að ég sé  að fara til afríku!!!Reyndar var ég að horfa á BBC-Food um daginn.....Don't ask!Og það var einhver svona kokkur sem bætir matseðilinn á hótelum og þetta var sko geeegt hótel, marmarasúlur og tuttugu m langt matarborð, fullt af allskonar réttum...Hei þá kom bara í ljós að þetta hótel er í sömu hótelkeðju og hótelið sem ég er að fara á!!!!:haha::haha:En nú eru s.s fimmtán dagar þangað til ég fer;)

Prímadonnan

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 11:17:15 / ballett

Það síðasta sem gerðist hjá mér var það að ég fór í Ölver, ekki sem matvinnungur heldur bara sem stelpa og nú réði ég sko ekki neinu!!!Að venju var ótrúlega gaman og mikið fjör, það voru ekki nema tvö kvöld í vikunni sem við fórum að svofa á réttum tíma, allataf eitthvað að gerast, hvort sem það var náttfatapartí, leit að foringjum, Jesúganga, björgun foringja, pottur, brennó, íþróttakeppnir ofl. Nú er ég bara komin heim og skólinn byrjar eftir fimm daga, mjög sorglegt!!Eftir nokkur ár verður skólaárið komið fram í júlí báðu megin!!:(Æ....nenni ekki að rífa mig núna en Þorgerður Katrín, ef þú ert að lesa skammast ég mín fyrir að vera nafna þín!!!!...Wow I'm a poet and I don't know it!!:lol:

Pímadonnan (ekki Katrín Þóra)

E.S Ég skrifaði miklu lengra blogg um allt sumarið mitt en það eyddist svo þið verðið bara að sætta ykkur við þetta..

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 19:03:33 / ballett

Prímadonnan...búin?

Æ....ég veit ekki hvoret ég eigi að hætta með þessa síðu.........alltaf þegar ég blogga þá er það eiginlega svona vonn tæm þeing:S....Margt búið að gerast, ég er bara í unglingavinnunni og svona, það er alveg ágætt, maður er bara að reyta arfa allan tímann, ég þoli ekki fólk sem segir að maður sé ekki að gera neitt, maður er alveg að gera fullt!!!!Reyta arfa.....mála vellina....raka steina(skil ekki alveg tilganginn með því)....tína steina o.s.frv....Reyndar held ég stundum að flokkstjórinn minn sé bara að reyna að halda okkur upptekknum með því að gera eitthvað, eins og til dæmis að:Raka steina!
Á laugardaginn er systir mín að fara að gifta sig og hún er öll í stressinu, en það er best að taka þetta bara á læminu = chillinu, maður giftir sig hvort sem maturinn er vondur eða ekki!...Það fer reyndar eftir því hvort brúðurin eða brúðguminn á sökina á því:haha:Ég á líka að gera soldið skemmtilegt í brúðkaupinu en bara gestirnir fá að vita hvað það er .....Svo eftir brúðkaupið fer ég að vinna sem matvinnungur í Ölveri!JEIJJ!!!Mig hefur alltaf langað það og núna er það loksins að gerast, jeijjjj!!!Er reyndar samt soldið kvíðin:$Ég blogga næst þegar ég er búin í Ölveri!!!

Bæbæ:P:!:

» 9 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 16:58:32 / ballett

Sumarfrí!!

Jájá, Þá er ég eiginlega bara komin í sumarfrí, bara svona rugldagar eftir, óvissuferð og eitthvað;)Annars finnst mér sumarfríið allt of stutt hérna og mér finnst að við ættum bara að klára í maí og byrja aftur í september:DÉg er allavegana búin í prófum og gekk bara ágætlega, sérstaklega með stærðfræðina sem ég hef nú aldrei verið eitthvað svakalega góð í;):SÉg veit ekki hvað tekur við núna, bara ballett og svona....

Prímadonnan

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 14:33:41 / ballett

Fermd

Nú er akkúrat vika síðan ég  fermdist, jeij!!!Þótt þaðsé búið að vera páskafrí hef ég verið bissí bissí, strax mánudaginn eftir fór ég, klippti mig stutt og fékk mér göt í eyryn, nú er ég bara orðin önnur manneskja utaná:DÞað er nú svona þegar maður er örðinn fullorðinn;):DÉg er líka búin að vera í sumarbústað, fór í Brekkuskóg með mömmu og pabba, þótt sá bústaður sé pínulítið A þá er hann kósí og hlýr, allar máltíðir voru dekur, dekur, grillkjöt og grillbananar með súkkulaði;)ÞEgar ég kom svo heim skellti ég mér í bíó á Big Mommas House, alveg ágætis vídeómynd, maður rekur alveg endrum og eins upp hlátursroku:lol:Þar sem það er páskadagur í dag er maður bara að tjilla heima, lesa bók og svona!Páskaeggið stendur á disk á náttborðinu og er sparað til næstu nammiþarfarstundar sem er núna:haha::haha:

Bless, súkkulaðið kallar!


Prímadonnan

» 7 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 09:09:46 / ballett

Jeijj!!!

Jeijj!!

Ég er s.s að fara að fermast á morgun!!!Jeijj!!Ég er svo mikið að deyja að ég vaknaði kl. sjö í morgun og gat eiginlega ekki sofið lengur:):D(Hvernig haldiði að ég verði á sjálfum deginum?):DAnnars finnst mér það bara búll í fólki að vera að segja að fermingarbörnin hlakki bara til gjafanna og sé alveg sama um allt hitt:!:Það er fáránlegt að segja það því meirihlutinn af fólkinu sem ég þekki hlakka mjög mikið til að fara í kirkjuna og finnst það hátíðleg stund!Fólkið sem málar þessu upp eins og einhverjum gjafadegi er örugglega bara fólkið sem var svo vitlaust að vera alveg sama um athöfnina í sinni eigin fermingu:$ En eeníveis, þeir sem koma í kirkjuna, fylgjist með mér, ég verð eiginlega fremst!:D

Bæbæ, óskið mér til hamingju!!:lol:

(Ég er ennþá ekki að fatta þetta!:$8|8|8|)

Prímadonnan.

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 15:07:47 / ballett

Jæjjja....

Jæjjja...Eftir þetta hressilega comment held ég að ég fari að blogga aftur, afsakið hléið. Það er ótrúlega margt sem er búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, alllt frá öskudegi til ballettsýningar. Ég held ég ætli samt bara að byrja á ballettsýningunni svo að það taki ekki allan dag að skrifa. Hún gekk s.s ótrúlega vel, bæði samkvæmt áhorfendum og mér.....Það var ótrúlega gaman að vera Gosi, Þótt að nefið mitt hafi ekki alveg verið að gera sig. Fyrst fattaði ég ekki alveg hvernig það átti að snúa og ég var með nasirnar upp svo að súrefnið átti soldið erfitt með að komast inn. Sem betur fer hvíslaði lítill fugl því að mér og ég náði að laga það. Ef þið viljið skoða myndir af sýningunni held ég að þið getið farið inná www.ballet.is og skoðað þær. Eftir sýninguna bætti ég á mig öllum kaloríum sem ég hafði misst við dansinn og meira til þegar pabbi tók mig Júlíu og Berglindi á Ruby Tuesday...hehehe:^):evil::haha::haha::haha:Efti það er ekki neitt merkilegt búið að gerast, ég lifi fremur viðburðasnauðu lífi akkúrat núna, hlakka bara til fermingarinnar, JÁ ÉG SAGÐI ÞAÐ GOTT FÓLK!!!!!!!!!!!!FERMINGARINNAR! Jejj ég hlakka ógeðslega til, búin að kaupa hvíta hanska, fermingarbók, sálmabók og vasaklút, svo er ég líka búin að fara í prufuhárgreiðslu, kaupa skraut í gluggana og á borðið, panta kransaköku, panta ótrúlega flottar blómaskreitingar ofl.JEijjj!!!!!!!!!!

Þið megið spurja mig hvað mig langar í fermingargjöf núna, er komin með nokkrar góðar hugmyndir:lol:

Prímadonnan

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 12:59:42 / ballett

Litla hafmeyjan??

Ætli Ariel Sharon viti að hann heitir það sama og litla hafmeyjan??:lol::$

» 9 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 18:49:49 / ballett

AMMLI!!!

Jæjjaaa.....Nú get ég loksins farið að blogga aftur um eitthvað skemmtilegt. Ástæðan fyrir því er sú að ég var að halda afmælið mitt í gærkvöldi, frá 6 til 1 ( um morguninn). 8)Þetta var eiginlega algjört gelgjuafmæli og fyrrgreindar gelgjur fóru vel mettar heim til sín um morguninn eftir pizzu, sykurpúðaköku og nammi. Stællinn á afmælinu var (auðvitað).......viljiði geta?...viljiði geta?....bleikur. Já ég sagði bleikur og kom örugglega öllum á óvart.:lol: NOT Það var þannig að ég var kölluð bleika prinsessan allt kvöldið með kórónu á höfði og köku í hendi!!Það voru auðvitað teknar fullt af myndum sem þið getið eflaust séð á tenglinum, króknum eða linknum Myndir. Fyrir þá sem ekki vita varð ég þrettán ára, 12. janúar en vegna hinna sérvitru vinkvenna minna og einu sinni sérvitra bróður míns gat ég ekki haldið það fyrr en núna....:D:S:(:whut:Annars er ég ekki frá því að það hefði bara verið verra að halda það þá, allir í stuði núna og ekki alveg jafn mikið að gera í ballettnum hjá mér:!:Það sem ég fékk í afmælisgjöf var bæði vellyktandi og ,,fabulous" s.s ég fékk Endless love í afmælisgjöf og bol sem stóð á fabulous. Ég fékk líka mjög flottann trefil sem á eflaust eftir að hlýja mér mikið og angel bol. Síðast en ekki, ég endurtek ekki síst fékk ég eiginlega stuttermabol sem maður vefur utan um sig og það er líka hetta á honum. Myndirnar sem við leigðum í gær voru, The Pacifier og The In-Laws. Báðar snúast um CIA Agents og fleira. Ég er samt ekki frá því að The Pacifier hafi verið betri.

Jæja, ég nenni ekki að skrifa meira og vona að þetta hafi fullnægt bloggþörfum ykkar, ég er farin að troða rækilega í mig kjúklingabringum og horfa á Jökul Frey og Andra Má leika með ,,Blörrur"

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 15:00:45 / ballett

AMMLI!!!

Jeij!Ég á líka ammli í dag, ég á líka ammli í dag!Það er búið að syngja fjórum sinnum fyrir mig í dag og vinkonur mínar, Berglind og Júlía komu með köku í skólann og stjörnuljósskerti:lol::lol::!::!:Það er ótrúlega gaman að eiga afmæli, sérstaklega þegar allir vilja syngja fyrir mann:haha::^):!:Ég er búin að fá ótrúlega flott Ballerínu sængurföt frá mömmu og pabba:D

Takk allir!;)Bæbb

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3